Sóltún öldrunarþjónusta ehf svarar ákalli heilbrigðisráðuneytisins um ný hjúkrunarrými

posted in: fréttir | 0

Sóltún Öldrunarþjónusta hefur boðið heilbrigðisráðuneytinu að reka Oddsson hótel sem tímabundna hjúkrunaraðstöðu fyrir aldraða. Þar myndi félagið taka á móti einstaklingum sem hægt er að útskrifa af Landspítalanum en komast ekki þaðan vegna skorts á úrræðum. Með því myndi léttast verulega það álag sem nú er á Landspítalanum, en Oddsson gæti tekið við allt að 77 einstaklingum í einstaklingsherbergi.

Sóltún Öldrunarþjónusta svarar þannig nýlegu ákalli heilbrigðisráðuneytisins, sem sendi fyrir skömmu erindi á hjúkrunarheimili og óskaði eftir að þau leituðu leiða til að fjölga hjúkrunarrýmum. Félagið býðst til að reka aðstöðuna í Oddsson á meðan samfélagið vinnur úr því erfiða ástandi sem skapast hefur vegna COVID-19. Fyrstu rýmin gætu verið tilbúin í nóvember.

Oddsson hótel er í nýuppgerðu húsnæði við Grensásveg og ekki þarf að ráðast í miklar breytingar á sameiginlegu rými eða herbergisaðstöðu til að hægt sé að reka þar þjónustu fyrir aldraða. COVID-19 hefur gert það að verkum að lítil eftirspurn er eftir hótelrýmum sem stendur og því hefur myndast þetta tækifæri til að nýta hótelið til að leysa bráðavanda Landspítalans.

Sóltún Öldrunarþjónusta er rekstraraðili hjúkrunarheimilisins Sólvangs í Hafnarfirði og heimahjúkrunarþjónustunnar Sóltún Heima. Félagið hefur jafnframt reynslu af uppsetningu og rekstri bráðabirgðahjúkrunarheimilis, því það opnaði og rak 30 bráðabirgðarými á síðasta ári sem stækkun við Sólvang á meðan beðið var eftir opnun nýs hjúkrunarheimilis á Sléttuvegi.

Nánari upplýsingar veitir:

Anna Birna Jensdóttir, stjórnarformaður Sóltúns öldrunarþjónustu, í síma 824 9000.