Sóltún öldrunarþjónusta tekur við rekstri Sólvangs

posted in: fréttir | 0

Sóltún öldrunarþjónusta ehf hefur tekið við rekstri hjúkrunarheimilisins Sólvangs í Hafnarfirði í kjölfar útboðs Ríkiskaupa fyrir hönd Sjúkratrygginga Íslands á síðasta ári. Sóltún öldrunarþjónusta tekur við rekstrinum af ríkinu sem hefur rekið heimilið síðan 1991.

,,Við teljum hér vera spennandi tækifæri á Sólvangi og hlökkum til að bjóða upp á hjúkrunarþjónustu sem byggir á hugmyndafræði sem hefur gefið mjög góða raun á hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík, en það hefur verið rekið við góðan orðstír til margra ára.   Hugmyndafræði Sóltúns hefur umhyggju fyrir einstaklingnum í fyrirrúmi, þar sem sjálfræði hans er virt í allri umönnun. Heimilisandi og virðing fyrir einkalífi hvers íbúa er ráðandi um leið og öryggiskennd sem hlýst af sambýli og sólarhringshjúkrunarþjónustu er náð. Athafnir daglegs lífs eru viðfangsefnið með áherslu á þátttöku íbúa og aðstandenda þeirra eftir getu, óskum og vilja hvers og eins,” segir Halla Thoroddsen nýr framkvæmdastjóri Sólvangs.

43

Seinkun á nýju húsnæði

Nýtt húsnæði á Sólvangi átti að afhendast í ársbyrjun en seinkun hefur orðið á afhendingu frá verktakanum. Vonir standa til að húsnæðið verði tilbúið í júní.  Þá munu 59 íbúar Sólvangs flytjast yfir og eitt rými í viðbót bætist við.  Eldra húsnæðið sem byggt var 1953 verður gert upp og við bætast 30 ný rými eftir endurbætur.  Einnig mun Sóltún öldrunarþjónusta sjá um rekstur 14 rýma í dagdvöl á Sólvangi.

Sóltún öldrunarþjónusta ehf er í eigu Íslenskrar fjárfestingar og Hjúkrunarmats og ráðgjafar ehf. Í stjórn félagsins sitja Þórir Kjartansson, Arnar Þórisson og Anna Birna Jensdóttir.

Sóltún öldrunarþjónusta ehf rekur einnig Sóltún Heima sem hefur boðið upp á persónulega heimaþjónustu, heimahjúkrun og heilsueflingu fyrir eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu sem miðar að því að efla, styrkja og styðja aldraða í sjálfstæðri búsetu.  Með Sólvangi getur félagið boðið upp á samfellu í þjónustu við aldraða á höfuðborgarsvæðinu og létt undir með fjölskyldum á heimili þeirra á meðan beðið er eftir hjúkrunarrými.  Sjá nánar um Sóltún Heima á www.soltunheima.is.