Aðstandendur og íbúar á Sóltúni og Sólvangi upplifa umhyggju og öryggi

Þjónustukannanir sem gerðar voru á Sólvangi hjúkrunarheimili og Sóltúni hjúkrunarheimili í lok ársins 2023 sýna að bæði íbúar og aðstandendur hjúkrunarheimilanna upplifa umhyggju og öryggi þeirra sem búa þar.

Það voru 42 aðstandendur íbúa á Sólvangi sem svöruðu könnuninni og 45 aðstandendur á Sóltúni.

Einnig voru íbúar beðnir um álit sitt á þjónustunni og voru það 28 sem svöruðu á Sóltúni og 19 á Sólvangi. 

Á Sóltúni hjúkrunarheimili eru 96% þátttakenda mjög sammála eða sammála að þeir upplifi virðingu og umhyggju starfsfólks. 86% þátttakenda sögðu að starfsfólk gefi sér tíma og að þeir upplifi öryggi. Þátttakendur upplifa sjálfræði á Sóltúni, að þeir geti farið á fætur og háttað þegar þeir vilja (86%). 

Á Sólvangi hjúkrunarheimili voru allir íbúar mjög sammála eða sammála að þeir upplifi virðingu starfsfólks og 95% sögðu að þeir upplifi umhyggju starfsfólks og öryggi. 84% íbúa á Sólvangi upplifa sjálfræði, að þeir geti farið á fætur og háttað þegar þeir vilja og 74% íbúa finnst starfsfólk gefa sér nægan tíma. 

Þjónustukannanir eru framkvæmdar árlega.

Sjá nánari niðurstöður hér:

Þjónustukönnun 2023 Sóltun hjúkrunarheimiliOpnast í nýjum glugga

Þjónustukönnun 2023 Sólvangur hjúkrunarheimiliOpnast í nýjum glugga